half way to hell
09.11.2006 23:59:29 / Sædís

Just to be with you, I'll do anything

Ákvað að skella einhverju smá hérna inn, ástæða bloggleysisins er vegna þess að tölvan minn þurfti að fara til læknis vegna heilaskaða að hef verið með ömurlega tölvu sem Stebbi lét mig fá með hræðilegasta lyklaborði í heim... en er sem betur fer komin með betri tölvu núna og lyklaborð sem ég þarf ekki alltaf að vera að taka úr sambandi... Skólin er að verða búin, bara mánuður eftir og verkefnum og prófum rignir á mann núna.. kennararnir hafa greinilega ekkert betra að gera... úfff, eins og það er ekki nóg að gera fyrir að fara að undirbúa sig fyrir lokapróf...
ég, Heiða og Lóa ákváðum að skella okkur á rockstar tónleikana, er samt að fara í þýskupróf daginn eftir en læt það samt ekki stoppa mig... læri bara vel áður en tónleikarnir eru og svo vakna snemma og læra meirra...
En ætla nú bara að hafa þetta stutt, ætla að fara að lúlla mér, tók þetta af síðunni hennar ásgerðar að endilega skrifa... ég kem svo með lengra blogg næst þegar tími gefst til.

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 22:34:44 / Sædís

I came to see the light in my best friend

jæja hvað gerir maður ekki fyrir hana evu sína ;) ákvað að skella hérna inn nokkrum línum :P þó að það sé ansi lítið að frétta :S þetta er ekki eðlilegt... marr gerir lítið annað en að læra og vera svo þreytt að maður nennir liggur við engu öðru :S er samt búin að fara soldið út á rúntinn með Plómaálfinum mínum ;) og synda synda synda (heitipotturinn) haha geggt dugleg þó að Heiða haldi því fram að ég sé að svindla :S ég meina hvað meinaru, þó að konurnar þarna séu svo góðar að gefa manni stundum 2 stimpla ef maður borgar fyrir 2 :D ég er bara að vera góð við þær að koma með fleirri viðskiptavini með mér :D búin að komast að því að þessir heimspeki tímar sem ég er í eiga eftir að fara mikið út fyrir efnið í vetur :P sem er náttúrulega ekki verra ;) vorum um daginn að fjalla um hvort að ætti að hækka bílprófsaldurinn og svo dýr í mat og þá sérstaklega ávöxtum og grænmeti, það er að segja laumufarþega sem marr fær svona í kaupauka :P ekki alveg það girnilegasta sem maður hefur heyrt :P ætla samt að þakka gellunum mínum fyrir kommentinn ;) líst samt ekki nógu vel á að banna tölvuleikinna :P ekkert smá gaman hjá mér og Natani um helgina í PS2 ;) haha já ég hækkaði sko í áliti hjá þeim stutta ;) ég gat sko bara allt :) en þið meigið endilega halda áfram að kommenta ;) gaman að sjá að það les þetta einhver :P haha já tengdó kom í bæjinn seinnustu helgi og gistu í ölfusborum þannig að við fórum auðvitað í heimsókn og fengum grillkjöt ;) :P nammi  
Núna eru bara 16 dagar í lönguhelgina og að Eva og ásgerður komi í borg óttans :) hlakka ekkert smá til að hitta þær og kíkja í bláa lónið :P endilega allir að koma með þanngað :) verður hörkustuð, svo að út að borða um kvöldið og svo verður öruglega kíkt út :) var smá óþekk með Svövu og Lóu um daginn :P þó að ég eyddi ekki alveg jafn mikið og aðrir :P keyptir mér 2 kjóla, eða voru að minnsta kosti merktir sem kjólar þó að ég minndi nú aldrei kalla annan þeirra kjól :P en hey meina 50% afsláttur þannig að tæknilega séð 2 á verði eins ;) svo er bara að bíða eftir 3 okt því þá ætlar mín sko í skífuna ;) nýji diskurinn með Evanescence að koma út :D get ekki beðið ;) búin að fá allan blue october diskinn... fíla hann í tætlur og allt nickelback safnið :D vá hvað mér tekst að bulla hérna um ekki neitt :P hummm dettur nú eiginlega bara ekki neitt meirra í hug þannig að þetta verður að vera nóg í billi.... þanngað til næst ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 08:46:07 / Sædís

see? I told you he wouldn't turn out gay

Sit hérna alltof snemma á föstudagsmorgni í skólanum og finn ekkert betra en að fara að blogga :P úff hvað ég get ekki beðið eftir að komast í helgarfrí og fara að sofa út :) þarf samt að laga gluggatjöldin áður en ég geri það :S er að verða vitlaus verður alltaf svo bjart á morgnana ;) en það er auðvitað bara ég :P
Er ekki ennþá búin að ná þessu kvefi almennilega úr mér :S þessi lyf slá smá á höfuðverkin en finnst samt þau gera ansi lítið annað :S búin að vera með hálstöflur eins og ég fái borgað fyrir það og drekka helling af heitum drykkjum (að ráði Kristínar) virðist samt ekki vera að virka nógu vel :S
Svo er Lóa að flytja í bæinn í dag og Svava einhver tíman á næstu dögum :P hlakkar ekkert smá mikið til að hitta hana :) og sjá nýja bílinn og íbúðina...
Komst að þeirri niðurstöðu um daginn að ég er hætt að horfa á myndir sem heita eitthvað "hill" í nafninu :S úf, fór á silent hill í bíó um daginn og þetta var eitt ógeð :S og svo tóku ég og stebbi the hills have eyes á DVD þar sem við höfuðum ekkert betra að gera og úff ojj bara djöf.. vibbi :S
En vá hvað mér langar út núna :) það er alveg svona ekta útlensk rigning :P búið að rigna eins og vitlaust hérna alla þessa viku liggur við :S samt geggt þægilegt þegar marr er komin heim undir sæng og heyrra í rigninguni ;) gott fyrir gróðurinn og hreynsar loftið eða eitthvað þannig :P
Karlinn minn búinn að fara í "klippingu" hann gafst upp á að bíða enda kominn með virkilegan lubba eftir að fá klippikonuna sína að Ari kom bara og rakaði á honum hausinn :P haha jamm, mér leist nú ekkert á það fyrst þegar hann sagði mér það en mér finnst hann nú bara vera mjög sætur svona :D en það er auðvitað bara mitt álit... ;)

Fékk þetta skemmtilega heimaverkefni í heimspeki í gær "hvernig getum við dregið úr ofbeldi í samfélaginu" :S ég stend sko alveg á gati... ef þið hafið einhverjar hugmyndir, endilega koma með komment :) fékk eitt í gær og það var bara að gera eins og rússarnir og leyfa vændi því þá væru karlarnir svo mikið að hugsa um að fá sér á broddinn að þeir hafa ekki tíma til þess að vera að slást :P haha En það eru víst rosalega mikið af fólki/krökkum sem eru farin að taka með sér hnífa á djammið hérna í höfuðborginni "bara svona upp á öryggið" :S iss hvert stefnum við eiginlega??
Endilega smá hjálp :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 09:04:42 / Sædís

what ever!! i do what i want

Jæja sumar"fríið" búið þannig að ég ætla að reyna að gera eitthvað að viti hérna og reyna að vera duglega að blogga í vetur.. eins og t.d. núna þegar kennarinn minn er veikur í 1 tíma... Ohh svo gaman eða hitt og, hefði getað kúrt upp í rúmi hálftíma lengur... en æi það er hvort sem er að koma helgi og svo er ég bara í skólanum til hádegis þannig að ég fyrirgef honum þetta... Skólinn byrjaði á þriðjudaginn og ég ætla sko að sökva mér ofan í námið í vetur :S þarf að ná þýskunni svo að ég geti útskrifast :S ákvað að taka stærðfræði, sálfræði, Sögu og táknmál :D fór svo í heimspeki og fjölmiðlaf. bara svona til að fylla upp í töfluna :P var frekar tómleg greyið... er með heyrnarlausann kennara í táknmálinu... soldið skrítið því að eina leiðin fyrir hann til að ná að tala almennilega við okkur er að skrifa á töfluna, en ég er samt búin að vera rosadugleg og læra alveg nokkur orð og búin að læra að segja nafnið mitt og svona :D :P  Erum flutt inn í bílskúrinn ;) ekkert smá fínt, erum eiginlega alveg útaf fyrir okkur þar sem við erum ekki við nein hús og karlinn/strákurinn/maðurinn sem leigir okkur þetta er geggt næs og vil allt fyrir okkur gera :) bauð okkur meirra að segja að nota heitapottinn hans sem er við hliðinn á okkur ef við vildum, þyrftum bara að tala við hann fyrst.. Erum ekki komin með netið samt ennþá en það er allt í vinslu, tölvan mín er hvort sem er í viðgerð... Urr er orðin ekkert smá pirruð, þeir eru búnir að vera í meirra en viku að skipa um þetta helv.. DVD drif.... þetta tekur ekki svona langan tíma, það er bara að taka það út og setja nýja inn, en jamm og svo hringdu þeir í mig á mánudaginn og svo las hann nákvæmlega það sem ég sagði við elkó stelpuna hvað væri að og svo spyr hann og "jamm hvernig lýsir það sér??" ég var bara "ha?" *að geisladrifið er ónýtt*- hugsaði ég ekkert smá pirruð þannig að ég endurtók bara hitt í öðrum orðum og hann sagði þá bara já ég kíki á þetta og það eru komnir 5 dagar síðan, díses... og þeir eru með skólatöskuna mína helvískar... urr en nóg af pirri... elkó gefur engin svör ekki frekar en gaurnarnir hjá ogvodafone....

En að öðru, Birgir Goði íþróttaálfur var 4 ára 13 ágúst :) ekkert smá stór strákurinn, ég kíkti til þeirra daginn sem ég fór og fékk að sjá vegavinnukökuna hennar Heiðrúnar ;) meistarstykki sko... og svo varð Líf engillinn minn 11 ára 23 ágúst og svo Svenni stóri bró orðinn ennþá stærri ;) 33, orðinn gamall karl bara... Svo áttu Karen og Ásgerður líka afmæli í þessum mánuði :) og héldu upp á sameiginlega afmæli en ég komst því miður ekki vegna heilsufars :( jamm fékk heiftarlegt mígrenniskast eftir næturvaktina að hausinn minn var að springa :S og svo á Biggi afmæli á sunnudaginn :S:S úfff, jamm þetta var sko mikil afmælismánuður :P en ég fæ þó kökur og svona á sunnudaginn :D og ég segi ekki nei við kökum :P

Jamm svo kom Lóa mín frá búlgaríu um daginn og var hérna í bænum í einhver tíma, keyfti sér bíl og svona sem ég er ekki ennþá búinn að fá að sjá :( en það verðu bætt úr því þegar hún kemur hingað suður :D jamm plómálfurinn minn er að fara að flytja í borg óttans ;) í næsta mánuði :D en við Lóa kíktum til Heiðu og Selmu og horfðum á video og Lóu vildi sjá íbúðina og ég sjá hana betur ;) var búin að kíkja einu sinni með stebba áður en Heiða flutti inn þannig að ég varð að fá að sjá hvernig hún var búin að koma sér fyrir. en kvöldið eftir dróu ég og Lóa, Stebba með okkur í bíó og á Silent hill jamm ég og Lóa héldum sko að þetta væri allt önnur mynd og þvíklíkur viðbjóður :S ojjj... bara.... en var samt mjög góð, þó að endirinn var soldið sérstakur :P  En jæja læt þetta vera nóg í billi af þrasinu í mér og hey já.... mér vantar sundfélaga... þarf að fara í sund 4x í viku þessa önn til þess að fá 2 einingar. þannig að endilega kommenta ef þið komist með :) bæbæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 19:06:14 / Sædís

06.06.06

jæja ákvað að blogga loksins í dag þar sem ég hef ekkert annað betra að gera eins og er :P ég og Stebbi erum búin að vera saman núna í 2 ár í dag ;) ekkert smá frábær dagsetning ;) er farin að vinna á fullu en verð samt eiginlega bara með börnunum og svo á næturvöktum sem er mjög fínt... helling af peningi í næturvöktum ;) maður er alltaf að verða spenntari og spenntari fyrir Búlgaríu ferðinni :D ohh hvað að verður frábært að slappa bara af í 2 vikur :P skólinn verður samt byrjaður þegar ég kem heim, en það reddast ;) þurfum að fara að leita að íbúð fyrir næsta vetur :S úff nenni ekki að standa í þannig barsli aftur... þannig að ef einhver veit um 2 herbergja íbúð til leigu á mannsæmandi verði í bænum þá endilega bjalla i mig :D ;) en ég ætla bara að láta þetta vera frekar stutt... er að fara að eta... adios

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 20:43:22 / Sædís

Never gonna get this song out of your head

Jæja prófin byrjuð og ég fékk að byrja á yndislegu stjórnmálafræðiprófi eða hitt og... :S en ég held að ég nái nú alveg :P próf taflan mín samt ekkert sú skemmtilegasta í heimi. var í einu prófi í dag og svo sál á miðvikudag og svo saga og þýska á fimmtudag :S úfff... en svo er ég búin :D bjartsýn með að ná öllu... nema þýskunni.. en það verður bara að koma í ljós :P
Fórum í grill til Selmu um daginn og Heiða og Teitur komu líka.... ekkert smá gott ;) enda karlinn minn sannur grillari, kartöflur eins og pabbi og kjötið billjant :P namm namm og aftur namm... svo var setið og mellt og svo farið í sing star þar sem ég og Selma þöndum sko raddböndin... ;) haha eru sko snillara... Teitur greyið var þá orðinn svo saddur og þreyttur að þau ákváðu að drífa sig heim þannig að Stebbi þurfti að þola okkur söngfuglanna soldið lengur :P
Svo átti Heiða afmæli um daginn, 20 stelpan þannig að við ákváðum að gera eitthvað og hún var búin að vera að tala um að vilja fara í bláa lónið þannig að ég og Selma ákváðum að fara með hana þanngað... ekkert smá notalegt... og ekkert smá fáir þarna :P það var samt ekkert verra :) sprikluðum þar í einhver tíma og fórum svo og fengum okkur ís :P svo var haldið heim því allir frekar dasaðir eftir sundið og frekar þreyttir :lol:
Svo horfði ég á þessa blessuðu sin city um daginn... og vá hvað þetta er drep leiðinleg mynd... entumst aðeins í nokkrar mínótur og þá sögðum við bara nei takk og fórum og tengdum bara tölvuna við sjónvarpið og horfðum á Draw togehter, sem eru sko snilld.... húmor við mitt hæfi, enda ekki erfitt að skemmta mér :P
En erum að pæla í að fara í bíó í kvöld á failure to launch ;) öruglega nett mynd, og ef ekki þá bætir leikarinn það sko alveg þokkalega upp, nett fallegur náungi. ;)
Allir búnir að breyta bloggunum sínum þannig að ég verð að fara að breyta öllum url-um hjá fólki :P meirra að segja Liljar er byrjaður að blogga aftur, það er eitthvað sem maður sér ekki á hverjum degi.. þannig að ég ætla að fara að koma mér í það... blogga seinna... cya


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 14:28:11 / Sædís

Er lýðræði mögulegt?

long time no see... ;) ohh já ég hef sko haft allt annað að gera en að blogga seinnustu daga... þeir hafa sko verið þokkalegt brjálæði.... ritgerðir, verkefnaskil og próf hérna hægri vinstir :P en mér hefur gegnið alveg þokkalega, fékk tvær 8 í sálfræði 313, eina fyrir viðtalið við ömmu og hina fyrir ritgerð um þjónustu við fötlum börn og 9,5 fyrir eitthvað verkefni... ohh ekkert smá sátt :D og fékk svo 8,5 fyrir sálfræði fyrirlesturinn minn um einhverfu :D ohh ég er svo dugleg ;) en núna eru prófin bara að byrja... úff ég hlakka sko ekki til... en það reddast :P Fór suður um páskana og fékk meirra að segja vinnu í nokkra daga sem var bara fínt, ekkert smá gaman að fara þanngað niður eftir og hitta krakkana :) mér er sko farið að hlakka til að koma vestur í sumar og vinna með þeim :) og svo var ekkert smá gaman að hitta alla :)
En mér er svo farið að hlakka til að komast heim í sumar... rúntar á kvöldin, ekki að hafa neinnar áhyggjur af leigu, mömmumatur og þægilega rúmið mitt :D Svo bara búlgaría 15 ágúst :D ohh sól, sumar og brúnka ;) híhí
Annars lítið að frétta.... nema læra læra læra, ætla að fara út að labba með selmu núna eitthvað ;) marr hefur svo gott af því... fá smá ferskt loft og svona :P
En eins gott að fara að fylgjast með svo að við stelpurnar hérna látum ekki þessar karlrembur valtra yfir okkur....

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 10:07:24 / Sædís

kæru rúsínurassar og krúttípútt

jæja ég hef víst ekkert betra að gera þar sem ég er í eyðu núna til hádegis nema að blogga :D
Fór í afmæli til Aldísar um daginn... ekkert smá gaman :P
Mamma og pabbi komu í bæjinn, humm einhvern tíman um daginn þar sem þau voru að fara til Póllands... og auðvitað var farið á KFC :P enda maturinn það algjört æði hummmm :P
annars bara allt fínt að frétta af mér... brjálað að gera í skólanum og verður það núna alveg þanngað til páskafríið byrjar :S þarf að taka 2 viðtöl, gera 1 stykki ritgerð svo er próf á mánudaginn og munnlegt próf í þýsku í næstu viku :S
En svo verður komið páskafrí :D stefnum að því að fara vestur á föstudeginum... s.s. eftir viku :P ohh hvað það verður fínt að komast heim :P
Selma koma heim frá Kanarí í gær og gaf mér súkkulaðikúlur.... humm þær eru svo góðar gæti étið þær endalaust :P Stelpan búin að taka smá lit ;)
Og enn einar æðislegar fréttir :P ég og Stebbi erum að fara út í sumar.... ohh já við eigum það sko svo ógeðslega skilið :P ætlum að skella okkur til Búlgaríu í 2 vikur, búin að panta og alles. sól, sandur og 30° hiti :D vá hvað þetta á eftir að vera æðislegt :) er ekki búin að eiga sumarfrí í 5 eða 6 ár :S og það er víst geggt ódýrt að lifa þarna og flug og gisting er á mjög góðu verði.
En núna bíð ég bara spennt eftir að komast heim í snjóinn :S vona samt að það verði eitthvað farið að hlýna :P hitta alla sem ég er farin að sakna alvarlega mikið, éta yfir mig af mömmumat og súkkulaði ;) en þanngað til næst.... túrúlú :)
Allir að segja hvað þeir hlakka mikið til að sjá mig í kommentum ;) eða ekki :P


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 21:38:46 / Sædís

close your eyes and i kiss you

wow talandi um lata bloggara þá er ég sko stoltur meðlimi ;) haha neinei vegna tímaskorts og antinennileika þá hefur bloggið þurft að láta í minni pokann... enda ekki ofarlega á things to do listanum mínum :P þarf að fara að breyta því ;) Aldís systir var 30 í gær þannig að maður kíkti audda í heimsókn með blóm og svona og hitti í leiðinni Heiðrúnu :) svo tókst okkur það merkilega í seinnasta mánuði, réttara sagt fyrir 2 vikum.... við seldum félagsrolluna okkar :P og fengum bara mjög gott verð fyrir hana... og keyptum okkur nýjan bíl í staðinn (audda ekki hægt að vera bíllaus hérna) og omg hvað ég elska þennan bíl :) Mitsubishi carisma :D 4 og sjálfskiptur þannig að ég get keyrt hann þar sem ég er loksins komin með ökuskýrteini aftur :S jamm mér tókst að láta hitt renna út :P Pabbi var í bænum um daginn og svo komu Linda, Finnbjörn og Natan sama dag og hann fór, þannig að okkur var boðið 2 sinnum á KFC þessa viku :P og ekki kvarta ég... namm ;) annars óskup lítið að frétta nema skólinn og aftur skólinn, var að gera fyrirlestur um daginn og er ekkert smá sátt við hann :) enda var ég ekkert smá lengi að gera hann :P
en út í aðra sála :P ætlum vestur um páskana, það er amk planið ef Stefán fær frí ;) sína nýja bílinn og svona... en erum samt ekki alveg viss hvenar við komum þar sem að þetta með fríið hjá honum er ekki komið alveg í ljós og svona :P en það gerist vonandi bráðlega :D
En held að þetta sé allt sem ég hef að segja.... blogga fljótlega... lofa :D bæbæ


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 23:47:18 / Sædís

Give me a reason to believe that you're gone

Góða og blessaða kvöldið ;)
ákvað að reyna að koma með smá færslu hérna áður en þessi síða deyr alveg :P er ekki alveg jafn dugleg og ég var búin að lofa að skrifa hérna inn :S
humm, það sem er helst að frétta af mér er skóli og aftur skóli :S hitt umsjónakennarann minn í dag og vorum að tala um útskrift og næstu önn :P ég verð kannski í 3 sögu áföngum.... 3 takk fyrir :S ætla að reyna að taka eitthvað í fjarnámi í sumar til þess að næsta önn verði ekki alveg jafn þung... en ef ég næ öllu á þessari á ég nefnilega 22 einginar eftir :P
annars eru ég og Stebbi að pæla í að skipta um bíl.... kaupa okkur aðeins nýlegri. þessi soldið gamall, reyna að losa okkur við hann meðan við getum og fáum eitthvað fyrir hann :) erum soldið skotin í hondum og mözdum :) ætlum líka að fá okkur sjálfskiptan í þetta skipti þar sem það fer betur með bílinn hérna í borginni upp á kúplinguna og eitthvað og svo að ég vilji keyra hann í borginni :S er svo óörugg á beinskiptingunni...
Erum líka að pæla í íbúð varðandi næsta haust, erum að pæla í að kaupa þar sem það er mun hagkvæmara heldur en að fara að leigja eitthvað stærra... og nei við skítum ekki peningum :P bíl og íbúð á stuttum tíma, en íbúðin er samt eitthvað sem á bara eftir að koma í ljós... ekkert ákveðið almennilega
en jamm nóg um það :S annars er bara ansi lítið að frétta eitthvað... fórum í bíó um daginn á Walk the line.... nokkuð nett mynd :) og svo komst silvía nótt áfram í forkeppninni :P hún fær sko pottþétt mitt atkvæði :P meina júróvision er rugl, afhverju þá ekki að senda rugl sem fólk á eftir að muna eftir :P miklu meirri líkur á að komast áfram... og meina hver man ekki eftir keppninni með Pál óskari ;) og hvað þá í fyrra gaurarnir með ömmunna á trommunum... ég skil ekki hvað fólk er að kvarta yfir að þetta sé asnalegt og verði okkur bara til skammar :S mér fannst líka lagið með Regínu sem var í 1 þættinum geggt flott... en ekki til þess að senda í keppnina.. ekki þannig lag.... og ég skil ekki afhverju Birgitta komst áfram halló hún fór út fyrir okkur fyrir 3 árum, hversu asnaleg værum við að senda 2 í röð einhverja keppendur sem hafa farið áður :S en jæja ég er hætt að velta mér upp úr þessu :P og meina þetta er blogg :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 22:10:26 / Sædís

og koma svo ;)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu af hverju þú valdir það?
7. Lýstu mér í einu orði?
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér e-ð, hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þér e-n tíma langað til að segja mér e-ð en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig? 


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 21:59:33 / Sædís

úti er alltaf að snjóa

óhnei ég er sko ekki dauð ;) amk ekki ennþá :P en það er búið að vera samt alveg helling að gera hjá mér skólinn að byrja og allt þetta vesen :S úff... og er að fara í próf... já þið lásuð rétt próf... og það er bara vika eða eitthvað liðin af skólanum :P en þetta er samt bara úr einum kafla þannig að þetta ætti að blessast :P

Ég var að koma heiman að frá Heiðu áðan.. ég, Selma og Heiða ákváðum að hittast... sáttum bara og vorum að kjafta eitthvað og reyna að finna eitthvað út úr þessu púsli sem ég gaf Heiðu í jólagjöf og það gékk bara svona misvel :P haha fórum svo og keyptum pizzu :S úff ég er alltaf étandi pizzur hérna :P og horfðum á Deuce Bigalow - European Gigolo :P haha smá tilbreyting frá South park :P

fór á Hostel myndina um daginn með Stebba og Heiðu og vá hvað þetta er mikil strákamynd... það er ekkert nema brjóst og kynlíf fyrir hlé og eftir hlé ekkert nema píntingar og blóð...hahaha s.s. fín í endinn... ekkert tekið tillit til okkar stelpnana fyrir hlé :P og svo var auðvitað íslendingurinn það besta í henni.. maður varð nú að sjá hana bara útaf honum :P

svo á ég að skrifa ritgerð um DV málið :S vá er þetta ekki einum of :S í stjórnmálafræði.. sé ekki alveg hvernig ég á að gera ritgerð um það... skil þetta með baugsmálið og allt það tengist stjórnmálafræði.. en ekki þetta :S

en þar sem ég held að ég þjáist alvarlega af athyglisbrest þar sem ég er engan vegin að halda athyglinni í að skrifa á þetta blogg ætla ég að fara að koma mér að læra... bæbæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 23:07:18 / Sædís

2 days before the day after tomorrow

hæhæ löngu komin tími á blogg ég veit :P en maður hefur haft soldið mikið annað að gera að ég hef eiginlega ekkert farið í tölvu allt fríið :)
en það sem er búið að gerast er þetta:
ég náði öllum prófunum :D geggt stolt... það hefur ekki gerst lengi :) fékk tvær 8 og eina 6 og svo bara S (staðið) í öllum hinum
Aldís útskrifaðist..... Til hamingju með það :) :*
ég náði 19 ára aldri ;) hahaha bara 1 ár í ríkið ;) væri kanski betra ef maður drykki nú eitthvað af viti til þess að vera að fagna því eitthvað ;) en efast um að það fari eitthvað að gerast í bráð þar sem karlinn er kominn í eina af sínum frægu drykkjupásum ;) hahaha
ég hélt upp á smá afmæli þegar mamma og pabbi voru fyrir sunnan útaf útskriftinni... fékk margar flottar afmælisgjafir.. t.d. ljósakort, brauðrist, svona dót fyrir ilmvax, fúndú"pott" fyrir sprittkerti :) DVD mynd, jón sig og jónsa, snyrtidót, peysun og bækrunar djöflatertan og ellefu mínutur :)
svo komu jólin með öllum yndisleg heitunum, góðum mat og pökkum ;) ákváðum að borða heima hjá mér og opna pakka sem við áttum þar og fara svo heim til Stebba í fjölskylduboðið og opna afganginn af pökkunum :)

ég fékk (og Stebbi líka sumt):
Stebba: yndisleg náttföt... algjör draumur að sofa í þeim :)
m og p : 2 pör af stigaskóm, party og co spilið, kerti og stebbi fékk snyrtitösku.
Aldís og Gummi: 2 glerskálar og ofnhanskar :D einmitt það sem okkur vantaði :D
Liljari: sæta bangsa og sápu
Svenni, Heiðrún, Líf og Birgir: sængurverasett ;)
amma: íslendingasögur :P
tengdó: leðurhanska
Natan Elí: Snyrtitaska :)
Bigga: Mr & mrs (skora á alla í það :P við rústum ykkur)
Önnu: despred housewife sápu (öruglega vitlaust skrifað :P )
Lóu: Katie Melua diskin
Heiðu: glerskál og nammi
Selmu: djöflatertubókina en fékk mér bara í staðin vetrarborgir :)
Evu: náttföt
Betu: pönnu og skálar og prjóna og svona og uppskriftir af tælenskum réttum :P
ömmu hans Stefáns: handþeyttara
ömmu og afa hans Stefáns: kertastjaka :P

held að þetta sé allt :) var ekkert smá ánægð með allt sem ég fékk :) 1000 kossar til ykkar allra :*
svo var bara tekið því rólega og var að vinna eitthvað smá þarna inn á milli :) fínt að fara að vinna aðeins :P
Svo borðuðu við heima hjá Stebba um áramótin og svo var skotið upp :) fengu ónýtatertu... hún sprakk bara öll í tætlur.... fór s.s. ekkert upp í loftið í allar aðrar áttir... munaði minnstu að Natan hefði fengið eitt skot í andlitið hefði Biggi ekki verið svona fljótur að grípa í hann.. ég fékk sem betur fer ekkert í mig þannig að ég og Natan vorum þau einu sem sluppum úr þeirri árás :P  svo var skálað með (óáfengu)kampavíni ;) eða amk ég þó að sumir hafi held ég drukkið of mikið af því áfenga + bjór ;) en ég ætla ekkert nánar út í það.... ég þakka bara fyrir það að eiga svona skemmtilega tendafjölskyldu á nýársdag ;) því annars veit ég ekki hvar ég væri :P haha en svo ákváðum við bara að koma okkur suður í dag þar sem það er spáð ennþá leiðinlegra veðri á morgun :S þó að mér langaði ekkert rosalega að fara frá öllum :S en það var samt ágætt að komast hingað í borgina :P
en ég segi þetta nóg í bili... bæbæ 


» 40 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 18:59:52 / Sædís

nýtt klukk :P

Ef að þú kommentar nafnið þitt hérna á síðuna mína, þá geri ég þetta fyrir þig....

1) Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig...
2) Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig...
3) ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig....
4) Ég segi þér fyrstu ljósu minningu mína af þér..
5) Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á..
6) Ég spyr þig að eitthverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig...
7) Ef þú lest þetta þá þarftu að setja þetta á bloggið þitt.... :)

» 60 hafa sagt sína skoðun

28.11.2005 12:59:56 / Sædís

sad we lived, sad we die

hóhóhó ;) haha nei ég er sko ekki komin í jólaskapið ennþá... kemur öruglega ekki fyrr en ég verð komin heim.. engin snjór hérna ekki ekki neitt :S vantar samt ekki jólaskrautið út um allt :P er samt farin að pæla soldið í jólagjöfum og er búin að plana nokkrar :) er að fara að skoða á eftir með Selmu eftir skóla :P hún ætlar að koma og ná í mig á nýja bílnum sínum :) haha :P ætla líka að finna íþróttagalla sem mamma og pabbi ætla að gefa mér í afmælisgjöf þar sem ekki neitt úrval er til heima á ísó...

Svo eru prófin að fara að byrja... úff komin með kvíðahnút í magann.... fer í stærðfræðipróf á föstudaginn.... var að gera gamalt próf sem kennarinn lét okkur fá og það gékk bara svona lala :S er svo að fara í þýskupróf á mánudag og sögupróf á fimmtudeginnum í næstuviku :S úff.... er búin með íslenskuna og utn... omg já ég náði víst utn, vissi það ekki... var skráð í þennan blessaða tölvuáfanga eins og flestir hérna, fór í einn tíma og svo stöðupróf en fékk aldrei að vita hvað hvort að ég hafði náð eða ekki þannig að ég var búin að ákveða það að ég varð greinilega að mæta í tíma, sem ég hafði engann áhuga, Stebbi getur nú kennt mér allt þetta sem ég þarf á tölvur.. en svo var ég inn á innu um daginn og þá sá ég að ég hefði ná því :P haha bara alveg 2 heilar einingar :P hehe ekkert smá sátt :P

Svo kom Ásgerður í bæinn um daginn... og kom í heimsókn og fékk krem með köku :P haha jamm Stefán fékk að setja kremið á :P þó að Selma ætlaði nú að láta hann setja meirra :P og á laugardeginnum fékk Selma bílinn hans Úlfars í láni þannig að Ásgerður, Karen og frænka hennar kíktu með okkur á rúntinn... en eins og gerist oft þá varð ásgerður veðurtept þannig að við fórum í bíó ætluðum á litla kjúlla en svo spurðu Stebbi og Ari hvort að við vildum ekki koma á myndina waiting... nokkuð nett, gat hleigið alveg heillann helling

fór svo um daginn með Selmu og Heiðu í bíó á Elizabeth town :P ákváðum að nýta tækifærðið meðann Selma var með bílinn hans Úlfars.. nokkuð net mynd, öðruvísi en hún var látin líta út í auglýsingunni en samt góð :P 

en vá hvað mér hlakkar til að komast heim :) í mömmumat :P en svo fara mamma og pabbi suður rétt fyrir jól því Aldís er að fara að útskrifast og ætla að fá "íbúðina" okkar lánaða... þannig að ég þarf að gera almennilegar jólahreingerningar :S úfff... fór í heimsókn til ömmu minnar um daginn :P hún er að prjóna fyrir mig lopapeysu :) ekkert smá flott :P

en held að þetta sé nú í bili... þarf að læra fyrir þýsku.. bæbæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
S�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1737 dögum